Krossá í Bitrufirði
Krossá er lítil bergvatnsá, þar sem tvær stangir eru leigðar saman. Veiðisvæðið er um 8 km. langt með 24 merktum veiðistöðum. Krossá hefur gefið um 100 laxa á sumri en sumarið 2010 voru t.a.m. skráðir rúmlega 160 laxar í veiðibókina.
Sjálfbærni
Krossá er sjálfbær á og í þurrkatíð verður mjög lítið vatn í ánni, því er oft hægt að sjá laxinn. Það er auðvelt að ganga nærri ánni og þess vegna er ekki leyft að drepa nema tvo laxa á stöng á dag og eru veiðimenn hvattir til að sleppa öllum stórlaxi, sem er mjög mikilvægt fyrir sjálfbærni árinnar.