Veiðihús
Ágætt veiðihús fylgir ánni og er það járnklætt timburhús með svefnplássi fyrir 9 manns á tveimur svefnloftum og tveimur herbergjum með efri og neðri koju hvort. Í húsinu eru öll helstu eldhúsáhöld, ísskápur, eldunarhellur, frystikista og gasgrill og baðherbergi með sturtu.
Verönd er meðfram húsinu og fyrir öðrum gafli þess. GSM samband er í húsinu. Veiðikort og veiðibók eru í húsinu.